Fyrir það fólk sem var að spá afhverju það væri að fá steina í bílinn sinn, innum gluggann sinn eða jafnvel bara inní garð þá er skýringin sú; höfum það þó á reynu að hér er ekki Steini Pétur á ferðinni ég er að meina svona grjót eða hnullunga þannig við skulum bara halda okkur við það. já allavega skýringin fyrir þessum grjótrigningu eða hnullungarigningu eftir því hvað fólk vill hafa það. Hún var svo að við hinir fjóru fræknu í fjalla- og jeppaklúbbnum rjúpunni bókstaflega spændum, spóluðum, skrönsuðum og allt það grjót eða hnullunga upp með hinn reynda víðháttubrjálaða Berg undir stýrinu.
Bjarki, afhverju eru rauð hár á peysunni þinni?
Í þessari fyrsta svaðilför hins ný stofna klúbb var förinni heitið á hið gífurfallega fjall Húsavíkurfjall eða kannski betur þekkt Housecreekmountain og hefur verið talað um að fjallið hafi minnkað um nokkra metra eftir þessa keyrslu en tek ég fram að það var lítið sem ekkert um umhverfisspjöll og bara keyrt eftir merktum vegum
Stubbarnir komnir á stjá?
Í byrjun ferðarins voru fáeinir svona gervi töffarar sem héldu að þeir væru jafntöff og við í Rjúpna fjalla- og jeppaklúbbnum en greyjin bara áttuðu sig ekkert á því að einhver bjammi og corullur eða e-ð í þá áttina eru enganvegin í líkingu við hinn geysikraft mikla Patrol sem nýji klúbburinn hefur fest kaupum á og voru þessir "töffarar" ekki lengi að hörfa eftir að sjá hinn síspólandi Patrol(L)
Rassar?
Þessi ævintýraför væru nú ekki frásögufærandi nema með svona já festingum og slíku. Það líka hlaut að koma að því að menn festust í þessum snjó á sumardekkjum og þessum brjálaða bílsrjóra. Enn eins og klúbburinn státar sig af því að "Rjúpuhendur gera létt verk" og er snjór ekki einu sinni til í okkar augum og voru kallarnir án skóflu og alles en létu hendurnar sjá um gröft og ýtingar og hinn kraftmiklabíl ekki lengi að komast af stað á nýju. En þá kom upp nýtt vandamál. Einn meðlimurinn var einum of töff og skrúfaði rúfuna of neðarlega, minnir að hann hafi verið með rauð hár á peysunni*-) allavega þurftu kallar þá að laga rúðuna. Það var góð stemmning í hópnum og samheldni hjálpuðumst menn með rúðuna upp. Reyndar var einn sem var bara dreymin og hugsaði um nýju skóna og 12.000 króna peysuna sem hann skildi eftir heima.
Brjálaði bílstjórinn var einnig nærrum því búinn að klessa á tvær rjúpur, því kallinn var orðinn banhungraður eftir erfiði kvöldsins og elskar að drepa þessa fugla. kommon Rjúpur eru bara mjög krúttlegar og góðir fuglar, það er bara hreinn mannvonska að drepa þessi dýr.
Einn miði á eina Fjallaferð með klúbbnum Rjúpunni -5.000 kr.
klúbbur dagsins: Fjalla- og Jeppaklúbburinn Rjúpan
Sjálfrennireið dagsins: Patrolinn
Elli Rjúpa segir þetta gott í bili
Rjúpan has left the building
10. maí 2007 klukkan 04:27
Elfar Árni Ađalsteinsson 2 athugasemdir
vegna engra áskorana hef ég ákveðið að skella einu bloggi hér inn til tilbreytinga þrátt fyrir mína eiginleika að geta gert blogg mjög leiðinleg þannig að það er fallega gert af þér að hafa litið hjá
allaveganna er árið 2006 er senn að enda og hið nýja 2007 að ganga í garð
ýmislegt er á döfinni á nýja árinu og fer bergur litli að verða fullorðin og fær bílprófið fljótlega á nýja áeinu og er það mjög ánægjulegt fyrir hann að geta uppfyllt æskudraum sinn og farið að keyra hjá botnsvatni auk þess hafa þær fregnir heyrst að bergur sé að spá í að gerast trúbador en einsog ég segi þá eru það bara sögusagnir. ýmislegt hefur líka heyrt af bjarka yaris og spurning hvort hann fari að hætta í skólanum til að geta einbeitt sér hjá GPG til að fá stöðuhækkun kallinn einnig er áhugi hjá honum að verða túlkur fyrir pólverja á íslandi..þetta á allt eftir að koma í ljós
slúðrhorninu er lokið í bili og verður fróðlegt að sjá hvað árið 2007 hefur í för með sér.
svo var auðvitað 2.flokkur að keppa á íslandsmótinu um daginn réttara sagt 28. des og má segja að hann hafi skitið hressilega upp á bak en þó lent í 3. sæti og hjálpaði ási kallinn lítið við það og er aþð algjört lögreglumál...
jæja nú er dagur brennuvargana að renna upp og eru þeir allir að stússast og skjóta útum allt og ýmist einhverjir fengið í andlit og fleira svo munið eftir gleraugunum! það er alveg í lagi að vera smá lummó það sakar ekki
jæja þetta er alveg nóg þannig við sjáumst bara líklega á brennunni krakkar mínir nema þeir sem ætla að vera bara í tölvunni og lesa þetta stórmerkilega og fræðandi blogg(Y)
allavega elska ykkur öll og þið fáið öll knús;*
Elvar yfir og út
31. desember 2006 klukkan 08:50
Elfar Árni Ađalsteinsson 14 athugasemdir
já er búinn að vera hundlélegur í blogginu undanfarið enda ekki skrítið því það er valla hægt að gera mikið leiðinlegra.
uss svo var hörku leikur í gær og lýsi ég undrun minni yfir því hversu fáir mættu en einhverjir þó. Enn leikurinn fór 3-3 fyrir þá letjingana sem nenntu ekki út í kuldan og rigninguna þannig við unnum riðilinn með einu marki mjög gaman af því:D http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=12749 hér getiði skoðað það og hérna er fyrir þá sem vilja kannski aðeins lesa þennan skemmtilega leik http://www.volsungur.is/frett.asp?d=1&Frett_ID=961
já þessi úrslit þýðir það að við erum að fara keppa á móti haukum á sauðarkrki á föstudaginn og verður gaman að rústa þeim og skora ég á fólkið að mæta á þann leik sérstaklega þá sem mættu ekki í gær en nóg af þessum leiðindum..
Skólinn byrjaður og það er verið að busa fólkið..svo var uppboð á daginn jújú og gulla mín keypti mig en hef nú ekki þurft að gera neitt svo meira af uppboðinu hann aron keypti nú allt rauðhærða fólkið þetta árið gaman að því.
jújú þetta leiðinlega blogg er á enda og afsakið lesendur fyrir þessa tímasóun..
bless og sjáumst hress
30. ágúst 2006 klukkan 05:03
Elfar Árni Ađalsteinsson 5 athugasemdir
djöfull erum við góðir og að gefnu tilefni ætla ég að minna fólk á leikin hjá okkur á morgun(föstudaginn) þegar við mætum þór í bikarnum og er mikilvægt að fólk mæti og sýni góðan stemmara einu sinni hjá besta völszungsliðinu þessa stundina. p.s. klukkan 17:00
nauj nauj mærudagarnir að skella og margt á boðstólnum spurning hvort maður taki með sér pela eða e-ð annað skemmtilegt með sér á bryggjuna, en já ætli það verður bara ekki gaman.
of course my horse
svo styttist óðum í að skólinn fari að byrja og ætli það verði ekki bara gaman
nenni ekki að hafa þetta lengra enda ekki góður í þessu.
lag dagsins: sexy back- JT
btw ný skoðunakönnunn....
28. júlí 2006 klukkan 00:50
Elfar Árni Ađalsteinsson 7 athugasemdir
já það hefur nú ekki komið blogg í soldin tíma enda hefur verið mikið að gera síðustu daga.
það var skroppið austur um helgina og keppt tvo leiki..við byrjuðum að leggja hið sameiginlega lið sem kallast víst Austfirðir á neskaupstað á þessu flotta gervigrasi og unnum við leikinn 5-0 og var smá ferðaþreyta í köllunum eftir það lá leiðin á Egilstaði og í fellabæ(sem er hinum megin við lagarfljótið) og farið á veitingastaðin svart hvítu hetjunaog étið þar yfir Þýskaland- portúgal. Eftir að liðið hafi étið á sig gat var þá farið aftur yfir á egilstaði og á villa park(vilhjálmsvöll) þar sem við gistum svo um nóttina og voru nokkrir sem voru nú að gera síma at og fleira. Daginn eftir var svo farið í göngutúr og fleira áðuren leikurinn við hött byrjaði. Leikurinn byrjaði illa og vorum við undir 2-0 í hálfleik en liðið okkar er mjög samhellt og sýndi frábæran karakter með að vinna leikinn 3-2 góðir við
jjjáááhhh
Annars hefur held ég e-ð lítið gerst þessa dagana og ei mikið skemmtilegt að segja frá jú nema auðvitað mætir fólkið á leikin hjá okkur 13 júlí á heimavelli klukkann 20:00 og svo líka 14. júlí ´klukkann 17:00..drattast á völlinn og hvetja sína menn
já veit ekkert hvað ég get bloggað um svo þetta ætti að vera gott í bili og endilega staðfesta mætingu á leikina í kommentunum
blasssar
12. júlí 2006 klukkan 01:34
Elfar Árni Ađalsteinsson 5 athugasemdir
já lítið að frétta þessa dagana held ég..en mfl. karla var að spila áðan og endaði hann 2-1 fyrir fjarðabyggð..ég var með bjarka í miðasölunni og má segja að ekki hafi verið mikið að gera.
Það er svo leikur á morgun klukkan 16:00 hjá okkur í 3.flokki og mæli með því að fólk mæti á leikin og styðji sína menn..eina taplausa Völsungsliðið sem af er sumri held ég unnum einmitt KA2 í síðasta leik og hlynur frændi var laannggflottastur eftir að lexi datt í grsaið og meiddi sig því miður er hlynur í ferðalagi þessa stundina og verður ekki í hópnum en skora samt á fólk að mæta í blíðveðrinu og skemmta sér yfir góðum fótbolta hjá köllunum.
Svo er spurning hvað maður ætti að gera í kvöld..kannski horfa á argentína-Mexíkó og fara svo út eða hvað en það kemur allt í ljós..maður þarf allavega að vera komin heim á skikkalegum tíma..kannski maður bjóði strákunum bara í hádegismat á morgun til að byggja upp enn betri móral það gerir allavega gott hjá konunum
ussussuss svo er ættarmót um næstu helgi og bíður maður spenntur..held ég veit reyndar ekkert hvort að það sé e-ð skemmtilegt fólk sé að koma..en jú hlynur kemur þá reddast þetta.
svo er ttp og ína í sjallanum í kvöld hefði pottþétt farið ef það væri ekki leikur á morgun..en það verður bara seinna.
úff..nenni ekkert að hafa þetta lengra að þessu sinni svo við sjáumst bara á vellinum á morgun
síjú
24. júní 2006 klukkan 23:01
Elfar Árni Ađalsteinsson 9 athugasemdir
já við í 3. flokk vorum að keppa á akureyri um daginn á móti þór2 og má segja um veðrið að þarf var mjög hvasst, kalt og völlurinn mjög blautur og laus í sér en við létum það ekki trufla spilasmennsku okkar eða jú reyndar pínu en það reddaðist. það tók okkur nokkurn tíma að skora en að lokum var það Ármann nokkur Gunnlaugsson sem náði að skora eftir góðan samleik hjá köllunum..já leikurinn endaði 7-0 með einu marki frá ámma, 2 frá gríma. þrem frá mér og eitt sjálfsmark sem grímsi kallinn hló frekar hátt að
kallarnir semsagt orðnir heitir og komnir með þrjú stig að auki.
Leikur í kvöld á Húsarvíkuvelli efri klukkan 20:00 já mæli með því að fólk mæti og stiðji sína menn..liðið er pínu vængbrotið sem stendur..það vantar Einar, Ámma, Fannar þeir í útlöndum..ekkert hefur heyrst frá jóhannesi okkar í langan tíma sem sést við hlið bergs hér að ofan og svo er spurning hvort dóri nenni að mæta.
takk fyrir mig í bili hlakka til að sjá ykkur á vellinum
blee:D
16. júní 2006 klukkan 19:17
Elfar Árni Ađalsteinsson 17 athugasemdir
ég er búinn að skella inn nýrri mynd..ástæðan er sú að fyrsti leikurinn okkar í sumar í 3. flokki er í kvöld á móti þór2 á akureyri. Liðið er á myndinni nema það vantar Daníel og svenni er ekki í liðinu lengur..kem kannski með blogg um leikin
já ég kláraði grunnskólann um daginn og má segja að veigar hafi sópað að sér verðlaunum svo var boðið upp á köku frá bakarínu sem var mjög góð.
Svo var leikur með 2. flokki í gær og kom ég fljótlega inná því aron fékk ágætis höfuðhögg og heilahristing í þokkabót..bergur og bjarki höfðu mjög gaman að því að tala við hann eftir höggið en leikurinn endaði semsagt 1-0 fyrir hetti og var það mjög á móti gang leiksins samkvæmt mínu mati.
ég fór í cs um helgina var víst á trial hjá umbrella og viti menn ég n´ði að drepa einn en nóg að því
nenni ekki að blogga meira í bili þannig kvittið endilega fyrir komuna..
sæl að sinni
12. júní 2006 klukkan 22:05
Elfar Árni Ađalsteinsson 7 athugasemdir